Tónlistarborgin

 

Um Tónlistarborgina

Tónlistarborgin Reykjavík beitir sér fyrir því að efla Reykjavík sem tónlistarborg með því að skapa hagstæð skilyrði fyrir gróskumikið tónlistarlíf.

 

Saga og markmið

Tónlistarborgin Reykjavík var tímabundið verkefni stofnað árið 2017 með stýrihópi skipuðum af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, þar sem áhersla var lögð á Reykjavík sem tónlistarborg. Nú hefur Tónlistarborgin Reykjavík verið fest í sessi sem sérverkefni innan Menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar. Tónlistarborgin er fjöltengi milli borgar og reykvískrar tónlistarsenu, auk þess sem verkefnastjóri hennar er stjórnarmeðlimur í alþjóðlegu tengslaneti tónlistarborga; Music Cities Network. 

Markmið Tónlistarborgarinnar er að skapa hagstæð skilyrði og sterkt stuðningsnet fyrir tónlistartengd verkefni til að blómstra í borginni, auk þess að varpa ljósi á reykvíska tónlistarsenu sem laðar að sér ferðafólk og íbúa.

 

Innlendi tónlistarbransinn

Tónlistarborgin vinnur náið með innlendum tónlistarbransa, þá helst ÚTÓN, nú innan nýrrar Tónlistarmiðstöðvar en einnig Stef og Íslandsstofu.

 

Verkefni Tónlistarborgarinnar eru mörg samstarfsverkefni með aðilum eins og Hörpu, Iceland Airwaves, Barnamenningarhátíð, List fyrir alla, Hinu húsinu og ýmsum reykvískum tónlistarhátíðum.

Stuðningur

Tónlistarborgin styður við ýmis tónlistartengd verkefni í borginni auk þess sem hún er framkvæmdaraðili annarra.

 

Áhersla er lögð á stuðning við þá þætti innan starfsemi tónlistartengda verkefna sem er ábótavant eða aðstoða við að tengja verkefnin betur við almenning eða borgarstarfsemi.

 

Í verkefnum Tónlistarborgarinnar er ávallt lögð áhersla á inngildingu.  

Inngilding

Gætt er að því að aðgengi borgarbúa á viðburði Tónlistarborgarinnar sé jafnt, bæði fyrir þátttakendur og neytendur, óháð kyni, uppruna eða fötlun.

 

Hafa samband

Ása Dýradóttir, verkefnastjóri og tónlistarkona rekur Tónlistarborgina Reykjavík. Þú getur haft samband með því að senda tölvupóst á netfangið asa.dyradottir@reykjavik.is

Almennar fyrirspurnir má senda á tonlistarborgin@reykjavik.is