Laugardaginn 6. febrúar taka tónleikastaðir í Reykjavík þátt í Open Club Day sem hefur það að markmiði að vekja athygli á þeirri starfsemi sem fer fram á tónleikastöðum, þeim störfum sem þeir skapa og því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna fyrir menningarlíf borga.
Open Club Day er verkefni Live DMA með stuðningi frá Creative Europe. Það er Tónlistarborgin Reykjavík sem hefur veg og vanda af skipulagningu dagsins hér í samstarfi við tónleikastaðina. Vegna heimsfaraldurs verður ekki hægt að standa fyrir viðburðum á tónleikastöðunum og því verður alfarið haldið upp á daginn á netinu í ár. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá skipuleggjendum og þátttakendum í Open Club Day um alla Evrópu kemur fram að grípa skuli tækifærið til að auka skilning stjórnvalda og annarra á erfiðu rekstrarumhverfi staðanna sem þó búa yfir þeim krafti að sameina fólk og fylla samfélög okkar af lífi.
Dagskrá Open Club Day í Reykjavík í ár felst fyrst og fremst í því að minna fólk á tónleikastaðina sem hafa flestir verið lokaðir eða þurft að vera með starfsemi í lágmarki nær allt síðast liðið ár.
Í dag, föstudaginn 5. febrúar kl 11:00
verða pallborðsumræður í streymi þar sem rætt verður um mikilvægi, hlutverk og framtíð tónleikastaða í Reykjavík en auk fulltrúa frá tónleikastöðunum og verkefnastjóra Tónlistarborgar taka þeir Hjálmar Sveinsson formaður íþrótta-, menningar- og tómstundaráðs Reykjavíkur og Baldur Þórir Guðmundsson sérfræðingur á sviði tónlistar hjá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þátt í umræðunum.
Laugardaginn 6. febrúar kl 14:00
verður streymt frá öllum tónleikastöðum sem taka þátt í deginum í Reykjavík samtímis sem tákn um samstöðu á fordæmalausum tímum og til að minna á tilvist og mikilvægi staðanna.
Staðirnir sem taka þátt í Open Club Day Reykjavík í ár eru Mengi, Gaukurinn, Hard Rock Café, Hannesarholt, R6013, Gamla bíó og Prikið.